Lífið

Grillaði og glensaði alla þjóðhátíðarhelgina

Swift og vinkonur glensuðu íkæddar bikiní og fána á þjóðhátíðardaginn, þann fjórða júlí.
Swift og vinkonur glensuðu íkæddar bikiní og fána á þjóðhátíðardaginn, þann fjórða júlí.
Söngfuglinn Taylor Swift fagnaði þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí, með sannkölluðum stæl og er umtalað að þarna hafi verið á ferðinni aðalpartíið af þeim öllum sem stóðu yfir heila helgi.

Var öllu til tjaldað en Swift hélt veisluna ásamt nýja kærastanum, Calvin Harris. Er mál manna að vart hafi verið þverfótað fyrir nafntoguðum einstaklingum og þá aðallega þeim allra heitustu í bransanum um þessar mundir, svo sem módelinu Gigi Hadid, Martha Hunt, Ed Sheeran og fleirum.

Grillandi gyðja. Calvin er í skýjunum með þetta hæfileikabúnt sem hann kallar sitt á Instagram síðu sinni.
Var herlegheitunum varpað samviskusamlega á Instagram-síður stjarnanna, og birti kærastinn meðal annars mynd af skvísunni við grillið, með yfirskriftinni „Hún kann sko líka að elda“, yfir sig ánægður. 


Tengdar fréttir

Swift sækir um einkaleyfi

Stutt er síðan að einhver hakkaði sig inn á Twitter-síðuna hennar og sendi póst á 51 milljón fylgjenda hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×