Viðskipti erlent

Grikkir þurfa 60 milljarða evra í neyðaraðstoð að mati AGS

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tilboð lánadrottna gríska ríkisins fer fram á sunnudaginn. "Oxi" er "nei“ á grísku.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tilboð lánadrottna gríska ríkisins fer fram á sunnudaginn. "Oxi" er "nei“ á grísku. vísir/epa
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að Grikkland þurfi 60 milljarða evra í neyðaraðstoð á næstu þremur árum til að koma á efnahagslegum stöðugleika í landinu. Þá metur sjóðurinn það sem svo að gríska ríkið þurfi miklar afskriftir og lægri vexti á lánum sínum.

Þetta kemur fram í skýrslu AGS um efnahagshorfur í Grikklandi en skýrslan kom út í dag, aðeins nokkrum dögum áður en Grikkir kjósa í þjóðaratkvæðaatgreiðslu um hvort þeir gangi að tilboði lánadrottna ríkisins.

Forsvarsmenn AGS eru ekki tilbúnir til að samþykkja samning um neyðarlán fyrir Grikkland nema að í honum felist bæði afskriftir og loforð efnahagsumbætur í landinu. AGS vill jafnframt að gríska ríkið byrji ekki að borga af lánum sínum fyrr en eftir 20 ár og að lokagreiðslur fari ekki fram fyrr en árið 2055.

Sjóðurinn metur það sem svo að Grikkir þurfir 10 milljarða evra á næstu mánuðum í neyðaraðstoð og svo 50 milljarða eftir það.

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, tók vel í hugmyndir AGS í dag en sagði að það sem kæmi fram í skýrslunni hefði aldrei verið borið undir hann í neinum samningaviðræðum.

Hann vill að þjóð sína hafni tilboði lánadrottna á sunnudaginn sem felur meðal annars í sér skattahækkanir og mikinn niðurskurð í velferðarkerfinu.

„Að segja nei á sunnudaginn er ekki að segja nei við Evrópu. Það þýðir einfaldlega að við krefjumst raunsærrar lausnar á vandanum. Annað hvort gengurðu að afarkostum eða þú velur lýðræðið,“ sagði Tsipras.


Tengdar fréttir

Hvetur Grikki til að hafna samningnum

Forsætisráðherra Grikklands vill semja um nýja neyðaraðstoð eftir að kosið verður um samninginn sem liggur fyrir. Hann hvetur Grikki til að samþykkja ekki samninginn. Kanslari Þýskalands segir tilgangslaust að semja eftir atkvæðagreiðsluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×