Viðskipti erlent

Grikkir óska eftir framlenginu á lánum ESB

Atli Ísleifsson skrifar
Gríski fjármálaráðherrann Yanis Varoufakis.
Gríski fjármálaráðherrann Yanis Varoufakis. Vísir/AFP
Grísk stjórnvöld hafa óskað eftir framlengingu á lánum sínum frá Evrópusambandinu. Þetta er haft eftir talsmanni Grikklandsstjórnar.

Í frétt BBC segir að lánið yrði ekki endurnýjun á þegar gildandi lánasamningum sem feli í sér stífar aðhalds- og niðurskurðaraðgerðir af hálfu Grikklandsstjórnar.

Grísk stjórnvöld höfnuðu á mánudag boði um framlengingu á 240 milljarða evra lánapakka ESB þar sem fjármálaráðherra Grikklands lýsti samningnum sem „fáránlegum“.

Líklegt er að sjóðir Grikklands tæmist, takist ekki að ná samkomulag fyrir lok febrúarmánaðar. „Við ætlum að framlengja áætlun um nokkra mánuði þannig að stöðugleikinn verði nægur svo megi semja um nýjan samning Grikklands og Evrópusambandsins,“ sagði fjármálaráðherrann Yanis Varoufakis í samtali við ZDF.

Þýski fjármálaráðherrann Wolfgang Schäuble gefur lítið fyrir tillögu Grikklandsstjórnar. „Þetta snýst ekki um hvort eigi að framlengja lánaáætlunina heldur um hvort staðið verði við þegar gerða samninga, já eða nei.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×