Körfubolti

Griffin sagður hafa ráðist á mann í Las Vegas

Griffin er hér með Kobe Bryant.
Griffin er hér með Kobe Bryant. vísir/getty
Lögregluyfirvöld í Las Vegas eru að rannsaka mál sem tengist NBA-stjörnunni Blake Griffin sem spilar með LA Clippers.

Clippers var að spila við Denver Nuggets í Las Vegas um síðustu helgi og eftir leik brugðu menn undir sig betri fætinum.

39 ára gamall maður heldur því fram að Griffin hafi ráðist á sig á næturklúbbi um nóttina. Hann tók mynd af Griffin og segir að leikmaðurinn hafi í kjölfarið gripið um hálsinn á honum, slegið hann utan undir og síðan tekið símann af honum.

Lögreglan er að rannsaka málið en Griffin var ekki handtekinn vegna málsins.

Þjálfari Clippers, Doc Rivers, sagðist treysta sínum manni 100 prósent og var vongóður um að þetta mál fengi farsælan endi. NBA er einnig að skoða málið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×