Fótbolti

Griezmann vildi ekki ræða við PSG í sumar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Antoine Griezmann.
Antoine Griezmann. vísir/getty
Antoine Griezmann, framherji Atletico Madrid, hefur nú staðfest að hann hafi neitað að fara til PSG í sumar.

Þessi 25 ára franski landsliðsmaður fékk mikla athygli í sumar og voru stóru klúbbarnir á eftir honum. Hann sló í gegn á síðasta tímabili og á EM í Frakklandi í sumar. Bæði Manchester United og Chelsea höfðu áhuga sem og frönsku meistararnir í PSG.

„Ég vissi alltaf af áhuga frá þeim, en á meðan Evrópumótinu stóð sagði ég við umboðsmann minn að ég vildi ekki tala við neinn,“ segir Griezmann.

„Ég bað bara um frið og ég fékk hann. Þetta er risaklúbbur sem vill verða enn stærri. Vonandi nár þeir takmarki sínu einn daginn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×