Fótbolti

Griezmann fékk rautt í jafntefli við nýliðana

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Griezmann var rekinn af velli í leiknum í kvöld.
Griezmann var rekinn af velli í leiknum í kvöld. vísir/getty
Atletico Madrid gerði 2-2 jafntefli við nýliða Girona í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Úrúgvæinn Christina Stuani skoraði tvö mörk á þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik sem slógu gestina í Atletico út af laginu.

Angel Correa klóraði í bakkann fyrir Atletico á 78. mínútu með glæsilegu marki. Hann fór framhjá þremur varnarmönnum Girona og smurði svo boltann fallega í hægra hornið.

Jose Gimenez jafnaði svo leikinn fyrir Atletico með marki á 85. mínútu. Suður-amerískur bragur yfir þessum leik, en allir markaskorarar kvöldsins koma frá Suður-Ameríku.

Frakkinn Antoine Griezmann, sem var sterklega orðaður við Manchester United í sumar, var rekinn af velli eftir 68. mínútur þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Fyrra spjaldið hafði hann fengið aðeins mínútu áður. Fyrst var hann spjaldaður fyrir dýfu og svo fyrir óíþróttamannslega hegðun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×