Handbolti

Gríðarlegir yfirburðir Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Barcelona
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði eitt mark er lið hans, Barcelona, vann stórsigur á Encantada í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Yfirburðir Börsunga voru miklir en liðið vann 20 marka sigur, 42-22, eftir að staðan var 25-8 í hálfleik.

Þess má geta að alls komust þrettán leikmenn Barcelona á blað í dag og voru átta þeirra með 100 prósenta skotnýtingu. Samtals nýttu leikmenn liðsins 42 skot af 50 í leiknum eða samtals 84 prósent.

Barcelona er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki en Encantada er án stiga á botni deildarinnar, rétt eins og Aragon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×