Handbolti

Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Fram

Guðlaugi Arnarssyni er að takast að bjarga Fram frá falli.
Guðlaugi Arnarssyni er að takast að bjarga Fram frá falli.
Fram fór langt með að bjarga sæti sínu í Olís-deild karla í kvöld.

Þá vann liðið sterkan útisigur og náði þar með tveggja marka forskoti á Stjörnuna en annað þessara liða mun falla.

Stjarnan á að spila við topplið Vals í næstu umferð og vinni Valur leikinn þá er Stjarnan fallin.

FH-Fram  24-29 (12-13)

Mörk FH: Andri Berg Haraldsson 6, Magnús Óli Magnússon 5, Theodór Ingi Pálmason 3, Þorgeir Björnsson 3, Andri Hrafn Hallsson 2, Halldór Ingi Jónasson 2, Daníel Matthíasson 2, Ásbjörn Friðriksson 1.

Mörk Fram: Garðar Benedikt Sigurjónsson 8, Stefán Baldvin Stefánsson 5, Kristinn Björgúlfsson 5, Sigurður Örn Þorsteinsson 4, Þorri Björn Gunnarsson 3, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Ólafur Jóhann Magnússon 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×