Íslenski boltinn

Grétar Sigfinnur og Jónas Guðni í góðan hóp

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Andri Marinó
Bikarsaga KR-inga varð enn glæsilegri á laugardaginn þegar félagið vann bikarmeistaratitilinn í fjórða sinn frá árinu 2008 og í fjórtánda sinn frá upphafi eftir 2-1 sigur á Keflavík.

Kjartan Henry Finnbogason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma og í öðrum bikarúrslitaleiknum á þremur árum kom Vesturbæjarliðið til baka eftir að hafa lent undir í byrjun leiks.

„Það var alger draumur að ná að klára þetta svona,“ sagði Kjartan Henry við Vísi eftir leik en minnstu munaði að Jonasi Sandqvist, markverði Keflavíkur, tækist að verja skot Kjartans. „Ég er nú búinn að vera að grínast með það að ég hefði viljað njóta þess að sjá boltann fara löturhægt yfir línuna,“ sagði Kjartan.

Sigurmark Kjartans sá til þess að Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Jónas Guðni Sævarsson unnu báðir sinn fimmta bikarúrslitaleik í Laugardalnum og jöfnuðu met. Því höfðu aðeins sjö menn náð áður eða þeir Árni Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Guðjón Þórðarson, Guðmundur Steinsson, Pétur Ormslev, Steinar Adolfsson og Sveinbjörn Hákonarson.

„Það er gaman að vinna þann fimmta. Okkur hefur gengið vel í titlasöfnun með KR og svo vann ég einn með Val. Svo fór ég líka í undanúrslit einu sinni með Víkingi þannig að bikarsaga mín er ágæt,“ sagði Grétar Sigfinnur sem jafnaði metin eftir að Hörður Sveinsson kom Keflavík í 1-0.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, er einnig búinn að vinna stóran titil á fjórum tímabilum í röð og því hefur enginn þjálfari KR náð í 85 ár eða síðan Guðmundur Ólafsson gerði KR að Íslandsmeisturum frá 1926 til 1929.

Fimm bikarmeistaratitlar í Laugardalnum

5 Árni Sveinsson

með ÍA 1978

með ÍA 1982

með ÍA 1983

með ÍA 1984

með ÍA 1986 (varamaður)

5 Bjarni Sigurðsson

Varamarkvörður hjá ÍA 1982

með ÍA 1983

með ÍA 1984

með Val 1990

með Val 1991

með Val 1992

5 Guðjón Þórðarson

með ÍA 1978

með ÍA 1982

með ÍA 1983

með ÍA 1984

með ÍA 1986

5 Guðmundur Steinsson

með Fram 1979

með Fram 1980

með Fram 1985

með Fram 1987

með Fram 1989

5 Pétur Ormslev

með Fram 1979

með Fram 1980

með Fram 1985

með Fram 1987

með Fram 1989

5 Steinar Adolfsson

Varamaður hjá Val 1988

með Val 1990

með Val 1991

með Val 1992

með KR 1995

með ÍA 1996

5 Sveinbjörn Hákonarson

með ÍA 1978

með ÍA 1982

með ÍA 1983

með ÍA 1984

með ÍA 1986

5 Grétar Sigfinnur Sigurðarson

með Val 2005

með KR 2008

með KR 2011

með KR 2012

með KR 2014

5 Jónas Guðni Sævarsson

með Keflavík 2004

með Keflavík 2006

með KR 2008

með KR 2012 (varamaður)

með KR 2014




Fleiri fréttir

Sjá meira


×