Lífið

Greta Salóme var talsvert frá því að komast áfram

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Greta var talsvert frá því að komast áfram.
Greta var talsvert frá því að komast áfram. vísir/getty
Greta Salome Stefánsdóttir var talsvert frá því að komast upp úr fyrri undanriðli Eurovision söngvakeppninnar sem fram fór síðastliðinn þriðjudag. Greta endaði í fjórtánda sæti en tíu efstu þjóðirnar komust áfram.

Síðasta lag inn í úrslitin var Króatía en það hlaut 133 stig þegar atkvæði dómnefndar og úr símakosningu höfðu verið lögð saman. Greta hlaut alls 51 stig en næsta lag inn í úrslit var lag Bosníu og Herzegóvínu sem hlaut 104 stig.

Ísland hlaut flest stig frá spænsku dómnefndinni eða alls sjö stig. Tékkar, Eistar og Finnar gáfu okkur fjögur stig. Að auki komumst við á blað hjá Austurríki, Króatíu, Kýpur, Ungverjalandi og Svíþjóð.

Rússar báru örugglega sigur úr bítum á undankvöldinu með 342 stig en Armenar og Malta fylgdu eftir í næstu sætum með yfir 200 stig. Úrslit undankvöldsins í heild má sjá hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×