Lífið

Greta Salome og Alda Dís bítast um miðann til Stokkhólms

Jakob Bjarnar skrifar
Alda Dís og Gréta Salome bítast. Samkvæmt veðbönkum verður að teljast ólíklegt að lagið Hugur minn er, blandi sér í þá baráttu.
Alda Dís og Gréta Salome bítast. Samkvæmt veðbönkum verður að teljast ólíklegt að lagið Hugur minn er, blandi sér í þá baráttu.
Lokakvöldið í forkeppni Eurovision-söngvakeppninnar verður haldið annað kvöld. Sex lög bítast um sigurinn, en samkvæmt veðbönkum eru það lögin Augnablik og Raddirnar sem teljast sigurstranglegust.

Það eru sem sagt söngdívurnar Greta Salome og Alda Dís sem munu einkum og sér í lagi bítast um miðann til Stokkhólms, þar sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin 10., 12. og 14. maí. Ísland keppir í fyrri undanriðli, 10. maí.

Skjáskot af Betsson-veðmálasíðunni. Svona líta stuðlarnir út.
En, aftur að veðbönkum. Sérfræðingar Betsson, sem sagðir eru býsna glúrnir og hafa nokkuð góðan feril að baki, hafa sett stuðulinn 2,70 á bæði Augnablik og Raddirnar. Þetta þýðir einfaldlega að ef einhver vill setja þúsund krónur á annað hvort lagið, og það vinnur, þá fær sá greiddar út 2,700 krónur. Það stefnir þannig í æsispennandi viðureign.

Samkvæmt stuðlum Betsson er lagið Á ný, sem Elísabet Ormslev syngur, en er eftir Gretu Salóme, líklegast til að blanda sér í slaginn meðal þeirra fjögurra laga sem útaf standa. Á ný er með stuðulinn 3,50. Óstöðvandi er með stuðulinn 4,80, Spring yfir heiminn með 7,25 en samkvæmt Betsson er nánast útilokað að lagið Hugur minn er fari fyrir hönd þjóðarinnar til Stokkhólms. Stuðullinn á því er 17, sem þýðir þá einfaldlega það að ef einhver hefur trú á því lagi, vill leggja þúsund krónur undir og Hugur minn er sigrar, þá fær sá hinn sami greitt út 17 þúsund krónur.

Íslendingar geta í ljósi þessa búist við æsispennandi Júróvisjónkvöldi á morgun.

Hér má hlusta á lag Öldu Dísar á ensku þar sem það heitir Now. Hér má hlusta á lag Gretu Salóme á ensku þar sem það heitir Hear Them Calling.

Tengdar fréttir

Fimm af lögunum flutt á ensku

Samkvæmt reglum keppninnar verður að flytja lagið í úrslitunum eins og það verður flutt í Stokkhólmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×