Lífið

Greta jákvæð og klár í slaginn: „Búið að vera rosaleg keyrsla og maður gleymir stundum að borða“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Greta er klár fyrir kvöldið.
Greta er klár fyrir kvöldið. vísir
„Kvöldið leggst alveg ótrúlega vel í mig,“ segir Greta Salóme í Stokkhólmi, en hún stígur á svið í Globen-höllinni í kvöld og tekur lagið Hear Them Calling, sem er framlag okkar Íslendinga í Eurovision-keppninni í ár.

Í kvöld kemur í ljós hvort Ísland verði í lokakeppninni á laugardag.

„Við erum búin að vera öll svo róleg og það er búið að vera svo ótrúlega góð stemning fyrir þessu öllu og allir svo samtaka að koma þessum boðskap til skila. Við erum búin að fá svo frábær viðbrögð undanfarið, bæði við boðskapnum og einnig við öllum rennslunum.“

Greta segir að hvernig fara sé hún ótrúlega stolt af þessu listaverki.

„Við erum búin að æfa atriði nóg og núna verðum við bara að treysta á vöðvaminnið,“ segir Greta en smávægileg vandamál voru við grafíkina í upphafi ferlisins en hún spilar stórt hlutverk í atriði okkar Íslendinga í ár.

„Grafíkin er orðin alveg eins og ég vil hafa hana. Það tók smá tíma þar sem við þurftum að taka algjöra u-beygju og þurftum að breyta um stefnu eftir að við sáum hvernig hún kom út með þessari tækni sem þeir lögðu upp með. Það var ekki að henta okkur og við þurftum því að bakka og vinna myrkranna á milli þar til þetta var orðið eins og við vildum hafa þetta.“

Vera jákvæð

Hún segir að það eina sem skipti máli núna er að njóta og vera jákvæður.



„Þegar ég vaknaði í morgun þá hugsaði ég strax, vá hvað ég er svöng. Þetta er búið að vera rosaleg keyrsla og maður gleymir stundum að borða og ég held að ég hafi hreinlega vaknaði við það hvað ég væri svöng.“

Greta segir að síðustu dagar hafi hreinlega verið mannbætandi reynsla.

„Sérstaklega þegar kemur að boðskapi lagsins. Fólk er búið að koma til mín með persónulegar sögur og maður finnur hvað hann er að skila sér. Það er það sem við ætluðum okkur að gera hérna,“ segir og bætir við skilaboðum til Íslendinga fyrir kvöldið; „Bara njóta og hafa gaman að þessu. Þessi keppni er bara þvílík gleðisprengja og þessi hátíð. Þetta er fyrst og fremst hátíð og frábærir tónleikar. Um leið þurfum við að passa hvað við segjum, orð bera mátt og fólk þarf að bera virðingu fyrir sköpun annarra.“  

Í gær fór dómararennslið fram og gekk Gretu virkilega vel. Staðið var upp fyrir henni og klappað. Vægi dómarana er 50% á móti atkvæðagreiðslunni og þurftu dómararnir að ákveða sinn hug í gær.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×