Körfubolti

Grét er Rose kom í réttarsalinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rose er nýgenginn í raðir NY Knicks.
Rose er nýgenginn í raðir NY Knicks. vísir/getty
Konan sem sakar NBA-stjörnuna Derrick Rose og tvo aðra menn um nauðgun bar vitni fyrir dómstólum í Los Angeles í gær.

Er Rose gekk inn í réttarsalinn brást konan við með því að fara að gráta. Hún grét reyndar mikið er hún rifjaði upp þetta örlagaríka kvöld.

Lögfræðingi Rose fannst komið nóg af tárum og bað dómarann um að skipa henni að hætta að gráta. Dómarinn svaraði því til að hann myndi ekki skipa henni að gráta frekar en að hann myndi skipa henni að hætta að anda.

Í vitnisburði konunnar kom fram að hún hefði farið með Rose og vinum hans í villu sem Rose leigði í Beverly Hills. Hún hefði verið búin að drekka áður en hún kom þangað og að drykkjan hefði haldið áfram er þangað var komið.

Henni leið eins og einhverju lyfi hefði verið laumað í glasið hennar. Hún man því lítið eftir kvöldinu í villu Rose.

Er hún kom í íbúð sína síðar um kvöldið þá ældi hún áður en það leið yfir hana. Í kærunni kemur fram að mennirnir þrír hafi þá komið til hennar og nauðgað henni.

Rose og félagar halda því fram að kynmökin hafi verið samþykkt og hún hafi boðið þeim heim til sín. Þeir hafa lagt sms-skilaboð og fleira til máli sínu til stuðnings.

Í málinu stendur orð gegn orði þar sem hún var aldrei skoðuð eftir hina meinta nauðgun og kærði ekki fyrr en tveim árum síðar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×