Sport

Greip boltann með derhúfunni | Myndband

Unga manninum óskað til hamingju með gripið góða.
Unga manninum óskað til hamingju með gripið góða.
Það er draumur allra hafnaboltaáhugamanna að grípa bolta á vellinum. Það gera það samt ekki allir með stæl.

Ungur maður gerði einmitt það í leik Los Angeles og Texas á dögunum.

Hann var ekki með hanska til þess að grípa harðan boltann og var fljótur að hugsa. Hann tók af sér derhúfuna og greip boltann með húfunni.

Smekklega gert og atvikið má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×