Innlent

Grein Hannesar: Fyrirboði forsetaframboðs eða endurreisn Davíðs?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir sérstakt að ritstjóri dagblaðs birti ítarlega „lofgjörð um sjálfan sig með hetjumyndum með erlendum þjóðarleiðtogum.“ Þetta kom fram í máli hans í Eyjunni á Stöð 2 í gær þar sem hann sat fyrir svörum ásamt kollega sínum Stefaníu Óskarsdóttur.

Eins og fram hefur komið var ítarleg úttekt á áhrifum Davíðs Oddsonar á íslenskt samfélag í tveggja opnu skoðunargrein Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í Morgunblaðinu á laugardag. 

„Ekki að ég þekki alla fjölmiðla veraldar en ég veit ekki um dæmi þessa annars staðar. Það finnst mér í sjálfu sér áhugavert,“ segir Eiríkur. Hann er þó þeirrar skoðunar að Davíð sé merkur stjórnmálamaður í Íslandssögunni.

„Hann var forsætisráðherra yfir langa tíð og mjög afgerandi sem slíkur. Kannski á sinni tíð einn öflugasti forsætisráðherra sem við höfum haft.“

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur.
Landslagið breytt eftir framboð Ólafs Ragnars

Davíð tók við starfi Seðlabankastjóra að loknum stjórnmálaferli sínum. Eftir fall bankanna var lögum breytt af ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem gerðu að verkum að starf Davíðs í bankanum yrði lagt niður. Davíð hætti störfum í febrúar 2009 áður en lögin komu til atkvæðagreiðslu á Alþingi.

„Hans ferill endaði ekki með þeim hætti sem hann, Hannes og hans menn hefðu viljað. Þetta er einhvers konar viðleitni til að endurreisa hans stöðu í þjóðfélaginu,“ segir Eiríkur.

Veltu Eiríkur og Stefanía fyrir sér hvort greinin tengdist mögulegu framboði Davíðs til forseta Íslands sem mikið hefur verið slúðrað um. Yrði Davíð forseti hefði hann náð einstakri þrennu: borgarstjóri í Reykjavík, forsætisráðherra og forseti Íslands. Stefanía telur hins vegar ekki von á framboði frá Davíð úr þessu.

„Ég veit til þess að Davíð Oddsson var að spá í framboð. Vinir og vandamenn, sem tengjast honum, hafa ýjað að því að hann var að hugsa málið. Landslagið hefur breyst það mikið eftir að Ólafur Ragnar tilkynnti sitt framboð að það er ekki á vísan að róa fyrir Davíð.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×