Tíska og hönnun

Greiðir fyrirsætum á tískuvikunni í New York

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/stefán
Hárgreiðslukonan Íris Sveinsdóttir er á tískuvikunni í New York þessa dagana þar sem hún greiðir fyrirsætum sem ganga tískupallana fyrir hönnuðinn Azede Jean-Pierre.

Azede er talin vera einn af þeim hönnuðum á tískuvikunni sem eiga eftir að gera það gott í heimi tískunnar en þessi hæfileikaríka kona er strax búin að safna að sér aðdáendahópi meðal stjarnanna og eru söngkonan Solange Knowles og leikkonan Angie Harmon meðal þeirra sem hafa hrifist af hönnun hennar.

Íris hefur því haft í nægu að snúast upp á síðkastið en hún er hvað þekktust fyrir hárbækurnar Gleðilegt hár og Frábært hár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×