Greiða ekki krónu fyrir kauprétt - fá hundruð milljóna á silfurfati Magnús Halldórsson skrifar 6. júní 2012 18:34
Lykilstjórnendum Eimskipafélagsins mun bjóðast að eignast hluti í félaginu á umtalsvert lægra gengi en reiknað er með að verði fyrir hendi þegar félagið verður skráð á markað í september. Hlutur þeirra gæti orðið milljarða virði. Eimskipafélagið er í skráningarferli og er talið að það fari á markað í september. Lykilstjórnendur hafa nú þegar tryggt sér kauprétt á hlutabréfum í félaginu. Óljóst er hvaða stjórnendur það eru. Eins og fréttastofa greindi frá fyrr í vikunni er þegar búið að teikna upp kaupréttarkerfi hjá Eimskipafélaginu, sem gerir ráð fyrir að lykilstjórnendur geti eignast um 700 þúsund hluti í félaginu, sem jafngildir um þremur og hálfu prósenti af heildarhlutafé. Stjórnendur félagsins hafa ekki viljað tjá sig um þessi mál við fréttastofu né heldur stjórnarmenn, en Íslandsbanki og Straumur fjárfestingarbanki vinna nú að undirbúningi skráningar félagsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu liggur þegar fyrir að forstjóri félagsins, Gylfi Sigfússon, er í hópi þeirra sem fær að eignast hlut, en þeir munu fá að eignast bréfin á umtalsvert lægra gengi en félagið verður skráð á markað á samkvæmt heimildum fréttastofu. Miðað við heildarvirði þeirra hluta sem lykilstjórnendurnir eignast með kaupréttarkerfinu, gæti virði þess hlutar verið allt að 1,4 milljarðar króna við skráningu, sé horft til heildarvirðis félagsins. En í kynningum fyrir hluthöfum félagsins að undanförnu hefur það verið sagt vera á bilinu 25 til 39 milljarðar króna.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Fleiri fréttir Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Sjá meira