Golf

Greg Norman nálægt því að missa hönd

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Greg Norman á góðri stund
Greg Norman á góðri stund vísir/getty
Kylfingurinn goðsagnarkenndi Greg Norman var nálægt því að saga af sér vinstri höndina með keðjusög.

„Ég er heppinn maður. Ég er meiddur en ekki búinn. Ég er enn með vinstri hönd,“ sagði Norman sem fékk viðurnefnið Hvíti-Hákarlinn  á níunda áratugnum vegna ljósu lokkanna sinna og sóknardjarfs golfleiks.

Greg Norman sem er 59 ára gamall vann Opna breska meistaramótið í tvígang og var á toppi heimslistans í samtals 331 viku á níunda og tíunda áratugnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×