Viðskipti innlent

Greenqloud tapaði 221 milljón

Sæunn Gísladóttir skrifar
Jón Þorgrímur Stefánsson er framkvæmdastjóri Greenqloud.
Jón Þorgrímur Stefánsson er framkvæmdastjóri Greenqloud.
Árið 2014 tapaði Greenqloud 221 milljón króna. Tap félagsins jókst um tæplega 70 milljónir milli ára. Hrein eign félagsins í árslok nam 115 milljónum króna, samanborið við 161 milljón árið 2013.

Skuldir félagsins í árslok námu 552 milljónum króna, samanborið við 173 milljónir árið 2013. Munurinn skýrist að mestu á langtímaskuldum. Félagið hefur staðið í þróun á hugbúnaði. Fram kemur í ársreikningi félagsins að litlar tekjur hafi skilað sér enn sem komið er. Þar sem félagið er þróunarfélag er töluverð áhætta í rekstri þess og framtíðartekjustreymi háð óvissu. Virði þróunarkostnaðar félagsins er háð því að áætlanir stjórnenda um fjármögnun félagsins gangi eftir og að tekjuflæði tengt eigninni í framtíðinni muni vera nægjanlegt. Stjórn félagsins hefur því ákveðið að gefa út breytanlegt skuldabréf fyrir allt að 400 milljónir til þess að styðja við rekstur þess árið 2015. Núverandi hluthafar og eigendur fyrri útgáfu skuldabréfs hafa ákveðið að kaupa bréf af félaginu fyrir 200 milljónir. Eigendur vinna nú við að leita fjárfesta til þess að koma að félaginu á seinni hluta ársins. Þeirri vinnu hefur þó ekki verið lokið.

Á árinu störfuðu 17 starfsmenn hjá félaginu miðað við ársverk.

Jón Þorgrímur Stefánsson, forstjóri Greenqloud, segir mikinn vöxt á markaðnum vera að skila sér í mikilli eftirspurn og athygli á Qstack á alþjóðavísu. “Við höfum farið frá 17 starfsmönnum í 44 á þessu ári til þess að standa skil á samstarfsverkefnum við stór alþjóðleg fyrirtæki, en þessi verkefni munu skila miklum tekjum til fyrirtækisins.  Það standa sterkir fjárfestar að baki Greenqloud sem hafa mikla trú á félaginu sem hefur gert okkur kleift að setja mikla þróunarvinnu vöruna okkar” segir Jón Þorgrímur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×