Fótbolti

Grátlegt tap AGF

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Daníel lék allan leikinn fyrir AGF.
Björn Daníel lék allan leikinn fyrir AGF. vísir/getty
Íslendingaliðið AGF tapaði á grátlegan hátt fyrir Aalborg í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur 1-2, Aalborg í vil.

Björn Daníel Sverrisson lék allan leikinn á miðjunni hjá AGF en Theodór Elmar Bjarnason sat á bekknum og kom ekki inn á.

Staðan í hálfleik var markalaus en á 57. mínútu kom Jakub Sylvestr Aalborg yfir. Christopher Oikonomidis jafnaði metin á 78. mínútu og allt stefndi í jafntefli.

En Jannik Pohl var á öðru máli og hann skoraði sigurmark gestanna þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Þetta var þriðja tap AGF í síðustu fjórum leikjum. Liðið er í 11. sæti deildarinnar með 23 stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×