Fótbolti

Grátlegt jafntefli hjá Blikastúlkum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fanndís og félagar í Blikaliðinu gengu svekktar af velli.
Fanndís og félagar í Blikaliðinu gengu svekktar af velli. vísir/ernir
Þrátt fyrir mikla yfirburði Blika gegn Spartak Subotica í kvöld urðu Blikastúlkur að sætta sig við svekkjandi jafntefli, 1-1.

Markalaust var í leikhléi en rúmum 20 mínútum fyrir leikslok náðu Blikastúlkur að brjóta ísinn. Þá skoraði Berglind Björg Þorvaldsdóttir fyrir Blikana.

Er uppbótartíminn var að renna út náðu Spartak-stúlkur að skora og tryggja sér stig í leiknum.

Blikastúlkur áttu 21 skot í leiknum en Spartak aðeins 7. Það segir sína sögu um yfirburði Blika í leiknum.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í undankeppni Meistaradeildarinnar. Fjögur lið eru í riðlinum og efsta liðið kemst áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×