Sport

Grátandi Ronda: Ég íhugaði að taka eigið líf

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ronda Rousey talaði í fyrsta sinn opinberlega af einlægni um tapið gegn Holly Holm í desember á síðasta ári þegar hún heimsótti Ellen Degeneres í spjallþátt hennar í dag.

Ronda var rotuð af Holly Holm en úrslitin eru ein þau óvæntustu í sögu UFC. Fram að tapinu gat engin snert Rondu í hringnum.

„Þetta var þriðji titilbardaginn minn á níu mánuðum sem er eitthvað sem hefur aldrei áður verið gert. Ég nota það samt ekki sem afsökun. Mér fannst ég vera þreytt, en ég hef alveg verið þreyttari en ég var þarna,“ sagði Ronda sem lýsti svo hvernig hún missti allan mátt eftir fyrsta höggið hjá Holm.

„Fyrsta höggið skar allan munninn á mér og losaði um tennurnar. Strákar berjast fimm sinnum fimm mínútna lotum og ekkert svona gerist. Þetta voru bara örlögin.“

„Mér leið eins og ég sá ekki neitt. Ég hafði ekki dýptarskyn og áttaði mig ekki á hversu langt var á milli handar minnar og andlitsins. Ég man ekki eftir stórum hluta bardagans,“ sagði Ronda.

Ronda sagði frá því hvernig heilinn hætti að virka og hún óttaðist að hún gæti ekki barist aftur.

„Ég sat í horninu í sjúkraherberginu og hugsaði: Hvað er ég ef ég get ekki stundað þetta áfram? Ég sat þarna og íhugaði að taka eigið líf. Mér fannst ég ekki vera neitt og vissi ekki hvað ég ætti að gera. Það er öllum sama um mig ef ég er ekki þetta áfram,“ sagði Ronda, en það var kærasti hennar sem kom henni í gegnum allt saman.

„Ég leit á Travis og hugsaði að ég þarf að eignast börn með honum og því halda mér á lífi. Þetta var það sem ég hugsaði. Ég veit ekki hvort ég hefði komist í gegnum þetta án hans,“ sagði Ronda Rousey.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

MMA

Tengdar fréttir

Ronda byrjuð að æfa á nýjan leik

Ein óvæntustu úrslitin í sögu UFC komu síðasta nóvember þegar Holly Holm rotaði Rondu Rousey á eftirminnilegan hátt.

Ronda snýr ekki aftur í júlí

Mikið að gera hjá Rondu Rosey í kvikmyndabransanum þannig hún berst ekki í júlí eins og til stóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×