Innlent

Grannt fylgst með ferðum fólks við Jökulsárgljúfur

Hrund Þórsdóttir skrifar
Dettifoss er aflmesti foss Íslands, 45 metra hár og rúmlega 100 metra breiður. Hann er svo sannarlega tignarlegur á að líta en í stóru flóði gæti ásýnd hans breyst mikið. Fossinn hefur raunar breyst talsvert undanfarin ár.

„Það bendir til þess að bergið undir honum sé veikt að einhverju leyti og það er mjög líklegt ef til flóðs kæmi að það myndi bera með sér til dæmis jaka og mikinn sand svo það er líklegt að það myndi étast eitthvað  af honum,“ segir Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðsvörður á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Og hefurðu áhyggjur af þessu? 

„Nei, en sem grín má skjóta því að að landamerki þjóðgarðsins eru beint við fossinn þannig að ég geri ráð fyrir að þjóðgarðurinn stækki við þessar breytingar,“ segir Hjörleifur.

Það er ekki bara á hálendinu sem svæðum hefur verið lokað því í grennd við Dettifoss er ein gönguleið lokuð. Áætlað er að um sex tíma tæki að rýma Ásbyrgi og Jökulsárgljúfur ef til eldgoss kæmi.

Getið þið tryggt öryggi fólks sem yrði statt hér ef til goss kæmi?

„Það virðist vera, miðað við þá lágmarksfyrirvara sem vísindamenn eru sammála um. Það er hraðinn á vatninu sem skiptir máli og við álítum að við hefðum nægan tíma til að bregðast við,“ segir Hjörleifur.

Hjörleifur segir slæmt ef óvissuástand dregst á langinn.

Hvernig finnst þér ástandið leggjast í ferðamenn?

„Eins og ég sá áðan í gestabók sem ég var að lesa finnst sumum þetta vera ævintýri.“

Það að hafa Dettifoss út af fyrir okkur, eiga vingjarnlegar samræður við þjóðgarðsvörðinn, og spennan vegna jarðskjálftanna gera þessa dvöl hér ógleymanlega.“

Aðrir hræðast hugsanlegar hamfarir en pólskur ferðamaður við Dettifoss hafði ekkert heyrt af þeim.

„Það væri mjög áhugavert að sjá þetta eldgos sérstaklega fyrir fólk sem hefur aldrei séð neitt slíku líkt gerast áður,“ segir pólski ferðamaðurinn Mircin Kwit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×