Lífið

Graníthörð villa við Elliðavatn til sölu á 90 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg eign á góðum stað.
Falleg eign á góðum stað.
Fasteignasalan LIND er með sérstaklega smekklegt einbýlishús á söluskrá við Fróðaþing 48 í Kópavogi en kaupverðið er 89,9 milljónir króna.

Um er að ræða 250 fermetra hús sem byggt var árið 2010. Fasteignamat eignarinnar er um sjötíu milljónir og fylgir húsinu 35 fermetra bílskúr.

Inni í húsinu eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Einstaklega vandað og vel frágengið einbýlishús á einni hæð á frábærum útsýnis og útivistarstað en eignin er innst inni í botnlanga.

Húsið er klætt með granít flísum, þakkanturinn er klæddur með granít flísum og að neðan klætt með mahóní. Hurðir og gluggar í húsinu eru úr mahóní. Hönnuður hússins er mikið að vinna með granít en þar má finna granít borðplötur og granít gólfflísar og er eignin því mjög viðhaldslítil.

Hér að neðan má sjá myndir innan úr húsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×