Fótbolti

Granada braut blað | Leikmenn frá 11 þjóðernum í byrjunarliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sverrir Ingi lék allan leikinn í vörn Granada í gær.
Sverrir Ingi lék allan leikinn í vörn Granada í gær. vísir/getty
Granada, lið Sverris Inga Ingasonar, vann afar mikilvægan 4-1 sigur á Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

Sverrir Ingi og félagar eru nú aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti þegar þeir eiga 15 leiki eftir.

Granada vann ekki aðeins stórsigur í gær heldur braut liðið blað í sögu spænsku úrvalsdeildarinnar með því að vera með leikmenn frá 11 mismunandi þjóðernum í byrjunarliðinu.

Í byrjunarliðinu sem Lucas Alcaraz, knattspyrnustjóri Granada, stillti upp mátti m.a. finna leikmenn frá Úrúgvæ, Nígeríu, Kólumbíu og auðvitað Íslandi.

Byrjunarlið Granada í gær:

Guillermo Ochoa - Mexíkó

Sverrir Ingi Ingason - Ísland

Dimitri Foulquier - Frakkland

Gastón Silva - Úrúgvæ

Litri - Spánn

Uche Agbo - Nígería

Martin Hongla - Kamerún

Mehdi Carcela - Marokkó

Mubarak Wakaso - Gana

Andreas Pereira - Brasilía

Adrián Ramos - Kólumbía


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×