Glamour

Grammy 2017: Verst klæddu stjörnurnar

Ritstjórn skrifar
Glam
Það er oft hárfín lína á milli þess að vera best klæddur og verst klæddur en þó nokkrir skutu vel yfir markið þegar kom að fatavali á Grammy verðlaunahátíðinni í Hollywood í gærkvöldi. 

Lady Gaga trónir á toppnum á þessum lista en hún er svo sem þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir þegar kemur að fatavali. Þetta leður og neta atriði sem hún var að vinna með í gær ... við höfum oft séð hana smartari. 

Svo er auðvitað smekkur manna misjafn en þetta er það sem okkur fannst ekki alveg vera málið á rauða dreglinum í nótt... 

Lady Gaga
Celine Dion
Andra Day
Laverne Cox.
Maren Morris.
Lea Michele.

Tengdar fréttir






×