Innlent

Grafalvarlegt mál að kjaradeildur standi yfir þriðja sumarið í röð

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir mjög alvarlegt mál að á háannatíma þriðja sumarið í röð séu í gangi kjaradeilur starfsstétta sem sjá um flugumferð til og frá landinu. Ítrekaðar launadeilur og kröfur um margfaldar launahækkanir bjóði þeirri hættu heim að þjónustan færist úr landi.

Kjaraviðræður flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins hafa staðið yfir frá því í nóvember. Flugumferðarstjórar hafa verið í yfirvinnubanni frá 6. apríl síðastliðnum en það hefur valdið töluverðri röskun á flugi. Morgunblaðið greinir frá því í dag að yfirvinnubann og veikindi flugumferðarstjóra hafi kostað flugfélögin sem fljúga yfir Atlantshaf á annan milljarð króna vegna meiri brennslu eldsneytis sem stafar af því að fara óhagkvæmari flugleiðir.

„Þetta er auðvitað mjög alvarlegt mál. Við erum að sjá þriðja sumarið á háannatíma sem við stöndum í verulegum kjaradeilum í kringum flugið,“ segir Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA. „Þar sjáum við hópa sem eru fámennir en mjög sterkt verkfallsvopn og með launahækkanir verulega umfram það sem aðrir eru að fá. Auðvitað getur þetta, svona síendurtekið, valdið álitshnekkjum hjá þeim alþjóðlegu flugfélögum sem hingað sækja og ferðamönnum.“

Sigurjón Jónasson formaður félags íslenskra flugumferðarstjóra sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að það ætti ekki að vera náttúrulögmál að laun á Íslandi séu lægri en í öðrum löndum. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að flugumferðarstjórar hafi hafnað tilboði sem svarar til 25 prósenta hækkunar launa, en það eru í kringum 250 þúsund krónur á mánuði.

Þorsteinn segir kröfur flugumferðartjóra alltof háar og í engu samræmi við Saleksamkomulagið. Ítrekaðar launadeilur og kröfur um margfaldar launahækkanir á við aðra bjóði þeirri hættu heim að þjónustan færist úr landi.

„Það er auðvitað þetta alþjóðlega flug sem við erum að þjónusta sem fér hérna yfir landið. Þetta gæti skaðað hagsmuni okkar þegar fram í sækir með hvað það flug sérstaklega varðar. Deilan er í algjörum hnút og við sjáum enga lausn þar framundan nema flugumferðarstjórar slái verulega af sínum kröfum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×