Innlent

Grænn apríl fer af stað

Ingibjörg Gréta Gísladótti og Guðrún Bergmann, verkefnastjórar Græns apríl. Mynd/Pjetur
Ingibjörg Gréta Gísladótti og Guðrún Bergmann, verkefnastjórar Græns apríl. Mynd/Pjetur
Grænn apríl er umhverfisátak sem hefur vaxið og þróast undanfarin ár og er nú ýtt úr vör í þriðja sinn. Því er fyrst og fremst beint að því að auka meðvitund fólks um hvað það getur gert til að draga úr umhverfisáhrifum. Aðaláherslan hefur því verið á að hvetja alla þá sem eru með vöru, þekkingu eða þjónustu sem er græn og umhverfisvæn að kynna sig í þessum mánuði. "Í ár erum við í samstarfi við 365 miðla um þessa kynningu og mun blaðið Fólk, sem er í miðju Fréttablaðsins, til dæmis vera "grænt" allan mánuðinn," segir Guðrún Bergmann, annar verkefnisstjóra Græns apríl. Auk umfjöllunar um verkefnið í miðlum 365, munu verkefnisstjórar Græns apríl halda úti Facebook-síðu og vefsíðunni graennapril.is til að færa fólki fréttir af því sem er grænt og umhverfisvænt. "Í samstarfi við Reykjavíkurborg verður einnig sérstakt hreinsunarátak 20. apríl undir heitinu "Einn svartur ruslapoki" en í fyrra tókst slíkt átak sérlega vel og bætti ásýnd borgarinnar," segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, sem er hinn verkefnisstjóri Græns Apríl. "Olís, sem er einn af samstarfsaðilum Græns apríl, mun gefa öllum sem vilja poka til að fylla og borgaryfirvöld munu síðan sjá um að sækja þá." Birting loftslagsbreytinganna Sá dagur sem Sameinuðu þjóðirnar hafa skilgreint sem Dag Jarðar er 22. apríl. Meginþemað tengt honum í ár er birting loftslagsbreytinganna. Grænn apríl mun standa fyrir viðburði sem tengist þessum degi í Háskólabíói 21. apríl frá 15-17 þar sem fjallað verður um það hvar þessi birting kemur fram hér á landi. "Þar verður bæði fræðsla og skemmtun því við blöndum saman stuttum erindum, tónlist og skemmtiatriðum," segir Guðrún. Aprílskógar 2013 "Ein besta leiðin til að binda koltvísýringsmengun er í gegnum trjágróður. Þess vegna ákváðum við að hrinda af stað söfnuninni Aprílskógar 2013. Stefnan er að safna fjármunum fyrir bændaskóga á Austurlandi en jafnframt að safna fyrir trjáplöntum til að planta í sérstakan Aprílskóg í Skorradal. Söfnunin verður í gangi allan aprílmánuð," segir Ingibjörg Gréta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×