Innlent

Grænmetisætur vara við grænmetissultu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Kjarnafæði framleiðir grænmetissultuna.
Kjarnafæði framleiðir grænmetissultuna.
Grænmetissulta er nýjasti þorraréttur Íslendinga og hefur notið nokkurra vinsælda. Fjallað var um þennan nýja rétt í kvöldfréttum RÚV í gær og kom þar fram að hann væri sérstaklega hentugur fyrir grænmetisætur. Samtök grænmetisæta benda þó á að rétturinn henti ekki grænmetisætum. Í honum sé matarlím (gelatín) sem unnið sé úr sinum, beinum og öðrum líkamsleifum spendýra.

Samtökin fagna þó allri nýsköpun sem snýr að auknu framboði grænmetisfæðis og segja það mikið gleðiefni að kjötframleiðendur séu farnir að huga að þessum hratt vaxandi hópi neytenda.

Ekki hugsað sérstaklega fyrir grænmetisætur

Grænmetissultan er frá Kjarnafæði og hafa Samtök grænmetisæta þegar haft samband við fyrirtækið. Ólafur Már Þórisson, sölu- og markaðsfulltrúi Kjarnafæðis, segir réttinn þó ekki hafa verið hugsaðan fyrir grænmetisætur, en að í bígerð séu réttir sem markaðssettir verða sérstaklega fyrir þann hóp. Varan hafi hugsuð sem nýjung fyrir þá sem ekki hafa getað notið þorrans sem skildi.

„Þó okkur sé mjög vel við grænmetisætur þá var rétturinn ekki hugsaður sérstaklega fyrir þær. Við fengum vinsamlega ábendingu frá samtökunum og við höfum tekið ákvörðun um að vera í meira samstarfi með vörurnar okkar og þau ætla að hjálpa okkur í vöruþróun þannig að réttirnir henti líka grænmetisætum. Ég er þegar búinn að tala við gæðastjórann og strax komnar lausnir, til dæmis matarlím úr þara,“ segir Ólafur.



Hér má sjá hvað Vísindavefurinn segir um gelatín:

Gelatín er hlaupkennt, lyktarlaust og bragðlaust prótein sem verður til við hitun kollagenþráða meðal annars úr sinum og beinum spendýra í nærveru vatns. Eins og önnur prótein, samanstendur gelatín af amínósýrum. Út frá næringarfræðilegu sjónarmiði er gelatín ekki hágæðaprótein eins og önnur dýraprótein, vegna þess að í það vantar lífsnauðsynlegu amínósýruna tryptófan.

Vegna eiginleika gelatíns sem þykkingarefnis er það mikið notað í margs konar matvæli og matargerð, sem matarlím eða hlaup. Sömuleiðis er það notað í lím og filmur. Gelatín er stundum ranglega talið vera styrkaukandi fyrir þann sem þess neytir. Í matvælaiðnaði er það notað í sultur og hlaup, sælgæti, ís og niðursoðnar kjötvörur, svo að eitthvað sé nefnt.

Tilkynningu samtakanna má sjá hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×