Lífið

Grænar plöntur lífga upp á heimilið

Fallegt að fylla heimilið með grænum plöntum í hvítum pottum.
Fallegt að fylla heimilið með grænum plöntum í hvítum pottum.
Hin sænska Rebecca Centren heldur úti bloggi undir eigin nafni, centren.blogg.se, en þar birtir hún myndir aðallega af heimili sínu ásamt outfit-myndum af sjálfri sér.

Hún starfar sem ljósmyndari og býr með manninum sínum, Andreas. Þau eiga nýtt og einstaklega fallegt hús sem er innréttað í dökkum en nýtískulegum, grófum stíl.

Hún er mjög hrifin af því að hafa lifandi plöntur og er skemmtilegt að sjá hvernig hún skreytir heimilið með þeim. Bloggið er fyrir þá sem vilja fá innblástur fyrir heimilið og skoða fallegar myndir.

Svart, hvítt og skandinavískt.
Brons, marmari og grænar plöntur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×