Golf

Graeme McDowell sigraði í Mexíkó

McDowell er mjög vinsæll kylfingur meðal golfáhugamanna.
McDowell er mjög vinsæll kylfingur meðal golfáhugamanna. Getty
Graeme McDowell sigraði á sínu þriðja móti á PGA-mótaröðinni á ferlinum í dag en hann lék best allra á OHL Classic á El Camaleon vellinum í Mexíkó.

Vegna verðurs tókst ekki að klára mótið í gær en að loknum 72 holum voru þrír kylfingar jafnir í efsta sæti á 18 höggum undir pari, McDowell, Jason Bohn og Russell Knox.

Því þurfti að grípa til bráðabana þar sem McDowell tryggði sér kærkomin sigur með fugli á fyrstu holu en hann hefur verið í töluverðu basli með leik sinn á árinu.

Spennan var ekki mikið minni á BMW Masters sem fram fór á Evrópumótaröðinni um helgina en margir af bestu kylfingum heims voru skráðir til leiks.

Þar enduðu þeir Patrick Reed og Kristoffer Broberg jafnir á 17 höggum undir pari en sá síðarnefndi hafði betur í bráðabana og vann þar með sinn fyrsta sigur á mótaröðinni.

Fyrir sigurinn fékk Broberg rúmlega 170 milljónir króna sem verður að teljast ágætt fyrir kylfing sem lék á Nordic Tour fyrir aðeins nokkrum árum, sömu mótaröð og íslensku kylfingarnir Axel Bóasson og Ólafur Björn Loftsson unnu sér inn þátttökurétt á fyrir stuttu.

Evrópumótaröðinni líkur svo um næstu helgi á Jumeirah vellinum í Dubai en þá fer fram stærsta mót ársins á henni, Dubai meistaramótið, þar sem gríðarlegar fjárhæðir verða í boði fyrir efstu menn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×