Fótbolti

Götze kominn aftur heim

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Götze hefur fimm sinnum orðið þýskur meistari þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára gamall.
Götze hefur fimm sinnum orðið þýskur meistari þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára gamall. vísir/getty
Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupunum á þýska landsliðsmanninn Mario Götze frá Bayern München.

Götze fer því aftur til Dortmund en hann lék með liðinu þangað til hann var seldur til Bayern fyrir þremur árum.

Götze, sem er 24 ára, skrifaði undir fjögurra ára samning við Dortmund sem endaði í 2. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Talið er að Dortmund hafi greitt Bayern 19,55 milljónir punda fyrir Götze en Bayern keypti hann á 31,45 milljónir punda á sínum tíma.

Götze varð þrívegis þýskur meistari með Bayern og tvisvar sinnum bikarmeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×