Lífið

Götutískan á tískuvikunni í París

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
vísir/getty
Tískuvikan í París er nýafstaðin með öllu því glysi og glamúr sem henni fylgir. Allir helstu tískuspekúlantar heimsins voru mættir til þess að sjá stærstu sýningarnar á tískuvikunni. Einnig mátti sjá margar frægar Hollywood stjörnur og allt helsta þotuliðið á hátíðinni.

Gestir tískuvikunnar fóru auðvitað í sitt fínasta púss og sprönguðu um fyrir æsta ljósmyndarana. Litadýrðin var mikil og sterkir litir í aðalhlutverki ásamt kvenlegum og fáguðum línum. Fallegur og vandaður textíll var einnig sérstaklega áberandi í götutískunni í París þetta árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×