Innlent

Gott veður um allt land

Von er á blíðskaparveðri um allt land um helgina.

Í dag má búast við björtu veðri á vestanverðu landinu en skýjuðu fyrir norðan. Allt að tuttugu stiga hiti verður á Norður- og Austurlandi. Um kvöldið gæti orðið smá súld inn til landsins á suðvesturhorninu.

Á morgun verður áfram gott veður. Léttskýjað um allt land og hlýtt í innsveitum á Norður- og Austurlandi. Hiti verður mestur á Austurlandi, allt að átján stig.



Í næstu viku gera spár ráð fyrir áframhaldandi norðlægum áttum með hlýju og björtu veðri sunnan- og vestanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×