Golf

Gott að Tiger kallaði mig fávita

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
McGirt varð annar á móti um síðustu helgi.
McGirt varð annar á móti um síðustu helgi. vísir/getty
Það er ekki á hverjum degi sem menn eru þakklátir fyrir að vera kallaðir illum nöfnum.

Kylfingurinn William McGirt er þó ævarandi þakklátur Tiger Woods fyrir að hafa kallað hann fávita.

Fyrir þrem árum síðan voru þeir að spila saman á móti og þá heyrði Tiger hann segja að hann fylgdist aldrei með stöðutöflunni er hann spilaði.

Ástæðan var sú að hann vildi ekki fara úr jafnvægi og klúðra einhverju með því að spá of mikið í stöðunni. Það fannst Tiger ótrúlega heimskulegt.

„Hann ræddi þetta mál við mig og sagði svo við mig að ég væri fáviti fyrir að gera þetta," sagði McGirt hlæjandi en hann hefur farið að ráðum Tigers í kjölfarið og átt betra gengi að fagna.

„Ég vil vita hvað ég þarf að gera til þess að komast yfir eða halda forystu. Það er betra en að spila í blindni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×