Erlent

Gorsuch heitir sjálfstæði í Hæstarétti

Samúel Karl Ólason skrifar
Neil M. Gorsuch, hæstaréttardómaraefni Donald Trump.
Neil M. Gorsuch, hæstaréttardómaraefni Donald Trump. Vísir/Getty
Neil M. Gorsuch, hæstaréttardómaraefni Donald Trump, hefur heitið sjálfstæði í störfum sínum verði hann staðfestur í embættið. Þá segir Gorsuch að hann hafi ekki lofað nokkrum aðila neinu varðandi úrskurði sína. Þetta sagði dómarinn við þingmenn, sem eiga að staðfesta hann, eða ekki, í embætti.

Dómarinn kom sér hjá því að svara spurningum þingmanna Demókrataflokksins um persónulegar skoðanir sínar varðandi fóstureyðingar, byssur og önnur umdeild málefni. Þess í stað sagðist hann nálgast alla úrskurði sína með opnum huga.

Gorsuch sagðist skilja persónulegar skoðanir sínar eftir heima.

Á meðan á kosningabaráttunni stóð í fyrra, sagði Trump að hann myndi tilnefna dómara sem myndi snúa væri tilbúinn til þess að snúa við úrskurðinum Roe vWade frá 1973. Sá úrskurður Hæstaréttar tryggði rétt kvenna til fóstureyðinga samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Repúblikanar styðja tilnefningu Gorsuch heilshugar en demókratar gera það ekki. Charles E. Schumer, leiðtogi minnihlutans á öldungadeild þingsins, velti upp þeim möguleika í dag hvort að eðlilegt væri að staðfesta mann í embætti til lífstíðar, sem var tilnefndur af forseta sem er til rannsóknar af Alríkislögreglu Bandaríkjanna.

„Mig langar að benda á kaldhæðnina í því að repúblikanar, sem héldu dómarasætinu auðu í tæpt ár á meðan Barack Obama var forseti, eru nú að drífa sig að fylla sætið fyrir forseta sem er til rannsóknar hjá FBI.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×