Google-sólgleraugu á markað í lok ársins

Fréttablaðið Tækni og vísindi 23. febrúar 2012 12:30
Talið er að Google-gleraugun muni líkjast þessum Oakley Thumps-sólgleraugum.
Talið er að Google-gleraugun muni líkjast þessum Oakley Thumps-sólgleraugum.
Tækni Framúrstefnuleg Google-gleraugu sem tengjast Android-snjallsímum eru væntanleg á markað í lok ársins, samkvæmt frétt The New York Times.

Hinar ýmsu upplýsingar úr símanum munu sjást þegar maður setur gleraugun upp, þannig að ekkert fari framhjá manni. Þannig er hægt að skoða tölvupóstinn, uppfæra stöðuna á Facebook og ýmislegt fleira með hjálp gleraugnanna á meðan maður er á gangi án þess að þurfa að gjóa augunum sífellt á farsímann. Talið er að í gleraugunum verði innbyggð myndavél og að verðmiðinn verði í kringum 30 til 75 þúsund krónur. Orðrómur er uppi um að þau muni líta svipað út og Oakley Thumps-gleraugu.

Svo virðist sem gleraugun séu hluti af langtímaáætlun Google um að auka notkun Android-stýrkikerfisins. „Android-kerfinu var alltaf ætlað stærra hlutverk en eingöngu fyrir farsíma," sagði Hugo Barra, háttsettur markaðsmaður hjá Google.

Fleiri fréttir - Tækni og vísindi

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Skoðun

Kynfæri keisarans

Kynfæri keisarans

Sif Sigmarsdóttir
Ég elska mat,“ sagði tónlistarmaðurinn Bryan Ferry er ég tók við hann viðtal í tilefni tónleika han...

Skoðun

Hin

Hin "sterka vísindahyggja“

Ólafur Þ. Stephensen
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðustu viku, í framh...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Tækni og vísindi / Google-sólgleraugu á markað í lok ársins