Viðskipti erlent

Google sigrar japönsk fyrirtæki fyrir rétti

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Ummælum um japönsk fyrirtæki verður ekki eytt.
Ummælum um japönsk fyrirtæki verður ekki eytt. Nordicphotos/AFP
Hæstiréttur Japans felldi í gær niður fjögur mál gegn tæknirisanum Google. Í öllum fjórum málunum var þess krafist að Google fjarlægði ummæli í kortaþjónustunni Google Maps sem þóknuðust málshöfðendum ekki og þóttu ærumeiðandi.

Áður, í apríl árið 2015, hafði neðra dómstig dæmt Google til að eyða ummælunum. Google áfrýjaði hins vegar niðurstöðunni með ofangreindum afleiðingum.

Einn málshöfðandi, ónefnd heilsugæsla, fór fram á að neikvæðar umsagnir um heilsugæsluna yrðu fjarlægðar þar sem þær voru taldar ærumeiðandi.

Málin kallast á við mál sem höfðað var fyrir æðsta dómstigi Evrópusambandsins. Þar komst dómari að þeirri niðurstöðu að þegnar ESB hefðu svokallaðan rétt til að gleymast og að Google bæri að fjarlægja leitarniðurstöður ef þær þóknuðust viðkomandi ekki. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×