Viðskipti erlent

Google greiðir nýjum fjármálastjóra 9,4 milljarða

ingvar haraldsson skrifar
Ruth Porat mun taka við starfi fjármálastjóra Google í lok maí.
Ruth Porat mun taka við starfi fjármálastjóra Google í lok maí. nordicphotos/afp
Google hyggst greiða nýráðnum fjármálastjóra sínum, Ruth Porat, 70 milljónir dollara á næstu tveimur árum í formi launa, hlutafjár og bónusa eða sem jafngildir 7,4 milljörðum króna.

Google réð Ruth fyrr í þessari viku en hún hefur hingað til starfað hjá Morgan Stanley en hún mun hefja störf þann 26. maí næstkomandi.

Fyrirtækið er í sókn á nýjum mörkuðum en það vinnur nú m.a. að hönnun á sjálfkeyrandi bíl.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×