Lífið

Good Morning America og NBC News sækja hart að Óskari

Guðrún Ansnes skrifar
Óskar Örn hafði þegar skrifað heila bók um hvernig ætti að ná sér í áhorfendur. Hann er kokhraustur er hann veltir framhaldinu fyrir sér.
Óskar Örn hafði þegar skrifað heila bók um hvernig ætti að ná sér í áhorfendur. Hann er kokhraustur er hann veltir framhaldinu fyrir sér. Vísir/Valli
„Ég sá þetta reyndar fyrir,“ segir Óskar Örn Arnarson, sem gerði stiklu upp úr sýnishorni nýjustu Star Wars myndarinnar, The Force Awakens, og Interstellar.

Þar sést Matthew McConaughey fara í gegnum allan tilfinningaskalann á meðan hann horfir á sýnishornið. Óskar kom þessari stiklu sinni fyrir á youtube og skemmst er frá að segja að hún hafi slegið rækilega í gegn meðal netverja.

Á þeim sex dögum sem hún hefur verið sýnileg á alnetinu hefur hún verið skoðuð hátt í átta milljón sinnum. „Ég setti þetta inn um morguninn og fór svo að sofa. Þegar ég vakna er allt farið á fullt og hefur ekki stoppað síðan,“ segir Óskar spenntur.

Gróðamaskína

Aðspurður um hvort svona árangur sé ekki ávísun á háar fjárhæðir, svara hann til; „samkvæmt því sem ég les, er talað um tvö þúsund dollarar á hverja eina milljón áhorfenda,“ og verður blaðamaður uppveðraður fyrir hans hönd. Óskar bætir svo við; „en ég á þetta efni sem ég nota í stiklunni minni ekki svo það er harla ólíklegt að eitthvað verði úr, strax.“

Sjá einnig: Atburðir í bókum Halldórs rætast: „Næstum skuggalegt hvað þetta er líkt“

Hann á sumsé von á að myndbandið muni skila honum fjölda fylgjenda og sé horft til lengri tíma, muni það enda með að skila honum aur í kassann ef hann heldur áfram að gera myndbönd.

„Nú þegar hafa Good Morning America og ABC News haft samband við mig, og beðið um leyfi til að sýna stikluna mína,“ upplýsir Óskar og bætir við að alls hafi fimm starfsmenn síðanefndu stöðvarinnar hringt í hann.

Ekki hræddur við lögsókn

Hann segist ekki óttast að verða fyrir barðinu á lögsóknarsjúkum Bandaríkjamönnum, „Þvert á móti reyndar. Ég held að þetta hafi bara haft góð áhrif markaðslega, fyrir báðar myndirnar,“ segir hann og bætir við að téð Star Wars stikla hafi nú þegar aukið virði Disney-samsteypunnar um tvo milljarða dala og telur ekki ólíklegt að hann eigi þar einhvern hlut í máli.

Varðandi framhaldið segist hann vera að ígrunda sína stöðu vel, en hann hefur ekki gefið þessari stikluframleiðslu nægan gaum, en telur þessar vinsældir gefa honum spark í rassinn.

„Ég hef verið að vinna að auglýsingastofunni minni 99 og skrifað bók, sem einmitt snýr að hvernig eigi að fá fimm miljónir birtinga á einum sólarhring.“

Óskar segist allt eins eiga von á að feta í fótspor þekktra Íslendinga sem hafa komið sér áfram með krafti Youtube, svo sem Stoney, sem komst á mála hjá Pepsi eftir að hafa slegið rækilega í gegn á miðlinum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×