Menning

Göngum brött og jákvæð til verka

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Hildur Magnúsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Charlotte Bøving, Laufey Elíasardóttir og Halldóra Rut Bjarnadóttir. Á myndina vantar Guðmund Inga Þorvaldsson.
Hildur Magnúsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Charlotte Bøving, Laufey Elíasardóttir og Halldóra Rut Bjarnadóttir. Á myndina vantar Guðmund Inga Þorvaldsson.
Halldóra Rut Baldursdóttir leikkona tilheyrir leikhópnum Ratatam sem undirbýr nú sýningu sem fjallar um heimilisofbeldi og er fjáröflun í fullum gangi.

Ratatam hefur safnað sögum af heimilisofbeldi bæði frá þolendum, gerendum og aðstandendum.

Hópurinn, sem Halldóra Rut Baldursdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Hildur Magnúsdóttir, Charlotte Bøving, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Laufey Elíasardóttir skipa, hlaut nýverið fjárstyrk frá Reykjavíkurborg.

„Við hlutum mjög þakklátan styrk frá Reykjavíkurborg núna í vikunni en borgin styrkti fjöldann allan af spennandi menningartengdum verkefnum fyrir árið 2016. Við höfum fengið óvæntan meðbyr síðasta árið með þessu fyrsta verkefni sem Rat­atam hyggst setja upp núna 2016, bæði meðal almennings og styrktarsjóða. Verkefnið hefur hlotið fjóra styrki frá ólíkum sjóðum,“ segir Halldóra Rut full þakklætis.

„Vinnutitill verkefnisins kallast SUSS!!! og er þetta verk sem byggir á reynslusögum fólks sem hefur orðið fyrir eða beitt heimilisofbeldi eða eru aðstandendur. Vinnan við verkið tekur á en hópurinn gengur brattur og jákvæður til verka og er stemningin innan hópsins mjög góð. Við erum um þessar mundir í viðræðum við aðra stuðningsaðila og sveitt við að fylla út umsóknir. Við erum mjög spennt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er mikill vöxtur innan sjálfstæða leikhúsgeirans, segir Halldóra Rut og hvetur fólk til þess að fylgjast með sjálfstæðu íslensku leikhópunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×