Innlent

Gönguhópur í sjálfheldu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sjö björgunarhópar á norðanverðum Vestfjörðum hafa verið kallaðir út.
Sjö björgunarhópar á norðanverðum Vestfjörðum hafa verið kallaðir út. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar út fyrir stundu vegna gönguhóps sem er í sjálfheldu á fjallinu Öskubak. Þrír hópar hið minnsta eru á leið á staðinn auk harðbotna björgunarbáts en ekki er vitað á þessari stundu hvort öruggara sé að komast að fólkinu frá landi eða sjó.

Hópurinn telur fimm einstaklinga. Hann gat sjálfur gert vart við sig og gaf björgunarsveitum upp GPS staðsetningu sína.

Þá var björgunarsveitin Höfn kölluð út rétt fyrir klukkan fimm í dag vegna tveggja einstaklinga sem höfðu fest sig í Skyndidalsá en hún er ein af þeim illfærari hér á landi. Farið var að flæða inn í bílinn og þurfti fólkið að klifra upp á þakið, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Ekkert amaði að fólkinu.

Fjallið Öskubak er ekki langt frá Galtarvita þar sem sömu sveitir leituðu pars í gærkvöld, en parið fannst heilu og höldnu upp úr miðnætti í Norðdal, sem er skammt frá Galtarvita. Parið hugðist ganga frá Bolungarvík að Galtarvita og þaðan í Selárdal þangað sem það ætlaði að vera komið klukkan fjögur síðdegis.

Reynt var að hringja í fólkið en þær hringingar fóru beint í talhólf og þá var reynt að senda SMS með vefslóð sem það átti að geta ýtt á til að gefa upp staðsetningu, en án árangurs. Björgunarsveitir voru þá sendar til leitar og fannst fólkið heilu og höldnu upp úr miðnætti, en það hafði breytt ferðaáætlun sinni án þess að láta vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×