Bílar

Golfbíll fer kvartmíluna á 12 sekúndum

Finnur Thorlacius skrifar
Golfbílar eru almennt ekki hannaðir til að fara hratt, en það á ekki við þá alla. Hér sést einn fara kvartmíluna hraðar en Mercedes Benz CL65 AMG, eða á litlum 12,24 sekúndum. Endahraði hans var 190 km/klst.

Þessi tími er nýtt Guinness heimsmet en það fyrra var 14,18 sekúndur með 167 km/klst endahraða. Það þarf djarfan ökumann til að aka þessum golfbíl svo hratt þar sem ökumaður er lítt varinn í bílnum og veigalítil veltigrind hans myndi ekki verja hann mikið ef bíllinn ylti á 190 km hraða.

Það alskemmtilegast við þetta er að aftast á golfbílnum öfluga er stórt golfsett með í för í metspyrnunni, bara svona til að sýna til hvers svona bílar eru almennt notaðir. Líklega var það þó ekki notað við enda brautarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×