Golf

Golfarinn glæfralegi segist vera lofthræddur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Golfhöggið hefur farið út um allan heim.
Golfhöggið hefur farið út um allan heim. Samsett/Sigurður Hauksson
„Ég er reyndar smá lofthræddur,“ segir hinn 19 ára gamli Sigurður Hauksson en glæfralegt golfhögg hans þar sem hann stendur á kletti í 984 metra hæð yfir sjávarmáli hefur vakið mikla athygli.

Sigurður er eins og gefur að skilja áhugamaður um golfíþróttina en segist þó fyrst og fremst vera skíðamaður enda er hann í unglingalandsliði Íslands í skíðum. Hann hefur þó verið meiddur undanfarið og golfið hefur komið sterkt inn og er hann með Instagram-aðgang þar sem hann deilir svokölluðum „trick-shots“.

„Ég hef verið að gera svona myndbönd en sá að margir aðrir voru alltaf að verða ýktari og ýktari í sínum myndböndum. Ég þurfti því að gera eitthvað klikkað, eitthvað sem enginn hafði gert áður.“

Sigurður er ekki eingöngu hæfileikaríkur golfari heldur er hann einnig unglingalandsliðsmaður í skíðaíþróttum.Sigurður Hauksson
Fannst þetta alveg nógu hættulegt

Það er óhætt að segja að það að sé örlítið klikkað að standa á steini sem er skorðaður á milli tveggja kletta í 984 metra hæð og vera að leika sér með golfkylfu og bolta. Þetta hefur þó vakið heimsathygli og fjölmiðlar á borð við Golf Digest og Golf Channel hafa fjallað um Sigurð en skotið hefur þó farið víðar.

„Ég hef varla gert neitt annað en að svara tölvupóstum í dag. Ég talaði líka við morgunþátt í Japan sem ætlar að sýna skotið í morgunþættinum sínum á morgun.“

Sigurður er búsettur í Noregi en segist vera kominn í örlítinn vanda enda sé erfitt að toppa þetta högg.

„Það er mjög erfitt að toppa þetta en ég verð að finna einhverja leið. Mér fannst þetta samt alveg nógu hættulegt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×