Viðskipti erlent

Goldman Sachs fjárfestir 54 milljörðum í fyrirtæki rekin af konum

Sylvía Hall skrifar
Goldman Sachs vill bæta stöðu kvenna í fjárfestingaheiminum.
Goldman Sachs vill bæta stöðu kvenna í fjárfestingaheiminum. Vísir/Getty
Goldman Sachs hefur ákveðið að fjárfesta 500 milljónum bandaríkjadala í fyrirtæki sem eru stjórnað, stofnuð eða í eigu kvenna. Það nemur tæplega 54 milljörðum íslenskra króna. Reuters greinir frá.

Fjárfestingabankinn segir þetta vera þeirra framlag til að loka kynjabilinu sem er til staðar í fjárfestingaheiminum. Aðeins 2% af því fjármagni sem fór í áhættufjárfestingar í Bandaríkjunum árið 2017 fór til fyrirtækja sem eru alfarið rekin af konum. Aðeins 12% fór til hópa með að minnsta kosti eina konu innanborðs. Innan við 2% hlutabréfafyrirtækja í Bandaríkjunum eru rekin af konum samkvæmt tilkynningu bankans.

Áætlun fyrirtækisins mun hjálpa viðskiptavinum þeirra að fjárfesta í fyrirtækjum á byrjunarstigi sem rekin eru af konum og aðstoða konur við að útvega þeim fé til að koma starfsemi þeirra á fót.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bankinn vekur athygli á stöðu kvenna í fjárfestingaheiminum, en það hefur áður tilkynnt að það stefni á að konur verði helmingur vinnuafls þeirra á heimsvísu fyrir árið 2021.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×