Körfubolti

Golden State slapp með skrekkinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stephen Curry.
Stephen Curry. vísir/getty
Hið fullkomna tímabil Golden State Warriors heldur áfram en félagið vann sinn 19. leik í röð í nótt.

Liðið þurfti þó að hafa fyrir sigrinum gegn Utah en leikurinn vannst með þremur stigum, 103-106. Utah náði að halda Steph Curry í aðeins 16 stigum fyrstu þrjá leikhlutana en þá kom sá fjórði. Þar skoraði Curry tíu stig og kláraði leikinn.

Staðan var jöfn, 101-101, þegar 51 sekúnda var eftir. Curry skoraði fimm síðustu stig Warriors og sá til þess að fullkomna tímabilið héldi áfram.

Golden State er nú búið að vinna 23 leiki í röð ef við tökum með síðustu leiki síðasta tímabils.

Úrslit:

Detroit-Houston  116-105

Miami-Boston  95-105

Atlanta-Oklahoma  106-100

Chicago-San Antonio  92-89

Milwaukee-Denver  92-74

Utah-Golden State  103-106

Sacramento-Dallas  112-98

LA Clippers-Portland  102-87

Staðan í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×