Leikjavísir

GOG gefa aftur út X-Wing og Tie fighter

Samúel Karl Ólason skrifar
Tölvuleikjaútgefandinn Good Old Games hefur gert samning um að gefa út hina sígildu leiki Star Wars X-Wing og Tie Fighter leikina. Fyrir tíu dali, eða um 1200 krónur verður hægt að spila leikina á nýjum PC tölvum.

Þetta kemur fram á vef Techcrunch, en þar segir að graffíkin hafi ekki verið uppfærð fyrir útgáfuna.

Fleiri gamlir leikir frá LucaArts verða einnig fáanlegir. Eins og Knights of the Old Republic, Indiana Jones og Fate of Atlantis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×