Handbolti

Góður dagur í generalprufunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kári Kristjánsson skoraði þrjú mörk í leiknum.
Kári Kristjánsson skoraði þrjú mörk í leiknum. Vísir/Getty
Íslenska handboltalandsliðið varð í gær fyrsta liðið í átta mánuði til að vinna Dag Sigurðsson og lærisveina hans í þýska landsliðinu. Ísland tapaði fyrri leiknum á laugardag en vann síðasta leik sinn fyrir EM í gær.

Íslensku strákarnir mæta sigurreifir inn á Evrópumótið í Póllandi eftir flottan þriggja marka sigur í síðasta undirbúningsleik sínum í Þýskalandi í gær. Liðið sem var svo ólíkt sjálfu sér í Kaplakrika á miðvikudaginn var er nú í blússandi sókn og ef Aroni Kristjánssyni og þjálfarateyminu tekst að halda liðinu áfram á þessari braut gætu dagarnir í Póllandi orðið ljós í janúarmyrkrinu fyrir íslensku þjóðina.

Bæta sig smátt og smátt

„Þetta var gríðarlega erfiður mótherji á erfiðum útivelli,“ segir Aron um leikina við Þjóðverja og hann segir liðið sitt vera á réttri leið. „Við erum að bæta okkur smátt og smátt. Þetta hefur litið vel út hjá okkur á æfingum en það er allt annað að vera í leik en á æfingu,“ segir Aron.

„Við höfum náð að greina vel leik okkar og vinna með þessi smáatriði sem þarf að vinna með,“ sagði Aron Kristjánsson en var fljótur að bæta við: „Það eru samt enn þá hlutir sem við þurfum að laga og ná að klára áður en mótið byrjar,“ sagði Aron.

Íslenska liðið vann seinni hálfleikinn í fyrri leiknum og var mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleiknum í gær. „Þetta er allt fram á við en það eru enn þá dagar eftir fram að móti þar sem við getum unnið einbeittir,“ segir Aron.

Sigur fyrir framan tíu þúsund Þjóðverja

Þýska landsliðið var búið að vinna sjö leiki í röð og alla leiki sína frá því að liðið tapaði fyrir Spáni í maí. Þýska liðið tapaði líka fyrir Íslandi rétt fyrir HM í Katar í fyrra og það reyndist ekki slæmt veganesti fyrir lærisveina Dags Sigurðssonar sem gerðu góða hluti á hans fyrsta stórmóti með liðið.

„Það er alltaf erfitt að mæta Þjóðverjum á þeirra heimavelli. Það voru tíu þúsund Þjóðverjar á leiknum í dag og mikil stemning í höllinni. Þetta var því mjög góður undirbúningur fyrir okkur fyrir Pólland því við vorum undir mikilli pressu af öllu í þessum leik. Það var því gott að klára slíkan leik,“ segir Aron.

Tapið á móti Portúgal fimm dögum fyrr var að hans mati mun meira áfall fyrir íslenskt handboltaáhugafólk heldur en liðið sjálft.

Létu tapið ekki trufla sig

„Við létum þetta tap á móti Portúgal ekki trufla okkur mikið því við fundum allir það sem var í gangi eins og á æfingunum. Þetta snerist því um að komast í takt við þetta allt saman,“ segir Aron.

Hann velur ekki lokahópinn fyrr en í kvöld eða á morgun.

„Við þurfum að sjá hvernig Bjarki Már Gunnarsson kemur út úr þessu og hann er stóra spurningamerkið. Það lítur vel út og hefur gengið mjög vel. Það hefur ekkert bakslag komið,“ segir Aron.

Íslenska liðið færði sig yfir til Potsdam í gærkvöldi og Aron segir að liðið muni sleikja sárin næsta sólarhringinn.

„Næstu dagar snúast um endurheimt enda erum við búnir að spila fjóra leiki á fimm dögum. Menn þurfa að ná sér eftir þessa törn og fara vel sig þangað til við förum að einbeita okkur að Noregi. Við byrjum seinni part þriðjudags að einbeita okkur að Noregi og þá verða vonandi allir búnir að ná sér líkamlega,“ segir Aron.

Aron Kristjánsson.Vísir/Getty

Tengdar fréttir

Aron: Höfum náð að greina vel leik okkar

Það var gott hljóð í Aroni Kristjánssyni, þjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta, eftir þriggja marka sigur á Þjóðverjum í Hannover í dag.

Aron: Sást að við erum á réttri leið með þetta lið

Landsliðsþjálfarinn var sáttur með ýmislegt í leik íslenska liðsins þrátt fyrir eins marks tap gegn Þýskalandi í æfingarleik í dag en hann segir að hann sé ánægður með framfarirnar frá óvæntu tapi gegn Portúgal á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×