Lífið

Góðmennt á tónleikum Önnu Mjallar

Anna Mjöll er hæfileikarík söngkona.
Anna Mjöll er hæfileikarík söngkona.
Góðmennt var á tónleikum söngkonunnar Önnu Mjallar Ólafsdóttur á Café Rósenberg sem haldnir voru síðastliðinn laugardag.

Söngkonan hefur gefið út tvo djassgeisladiska, Shadow Of Your Smile og Christmas Jazzmas þar sem á má finna alþekkt, sígild lög í einstökum útsetningum föður hennar, Ólafs Gauks, leikin af nokkrum af fremstu tónlistarmönnum Los Angeles borgar.

Væntanlegur er nýjasti geisladiskur hennar sem var hljóðritaður í klúbbnum Vibrato í Los Angeles, Anna Mjöll - Live At Vibrato.

Efnisskrá tónleikanna var fjölbreytt en Anna Mjöll flutti meðal annars lög sem þekkt eru í flutningi Ellu Fitzgerald, Astrud Gilberto, Söruh Vaughan, Billie Holiday og Marilyn Monroe.

Anna Mjöll er þekkt fyrir að segja einstakar skemmtisögur á milli atriða sem að sögn gesta vöktu mikla lukku.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×