Skoðun

Góðir kennarar – Hvað einkennir þá?

Jóhanna Einarsdóttir skrifar
Menntastofnanir teljast til grunnstoða samfélagsins og gott skólastarf er undirstaða velferðar hverrar þjóðar. Meginhlutverk skóla er að sjá um almenna menntun þegnanna eins og fram kemur í aðalnámskrám.

Menntun barna og ungmenna innan veggja skóla felur ekki einungis í sér þá þekkingu og færni sem nútímafólki er nauðsynleg, skólar eiga jafnframt ríkan þátt í að móta viðhorf og gildi samfélagsins. Keðja samverkandi þátta hefur áhrif á gæði skólastarfs og eru kennarar mikilvægir hlekkir í þeirri keðju.

Síðastliðið vor stóð Menntavísindasvið Háskóla Íslands fyrir átakinu „Hafðu áhrif“ í þeim tilgangi að vekja athygli á kennarastarfinu. Almenningi gafst kostur á að tilnefna góða kennara og barst mikill fjöldi tilnefninga frá fólki á öllum aldri. Um 500 kennarar voru tilnefndir og voru fimm heiðraðir sérstaklega. Nokkrir þættir stóðu upp úr þegar góðum kennurum var lýst:

Ástríða og metnaður í starfi

Margir minntust kennara sem höfðu ástríðu og metnað fyrir starfinu. Þeir vönduðu til kennslu og kennslugagna og höfðu mikinn áhuga og víðtæka þekkingu á því sem þeir voru að kenna. Þessu fylgdi einlægur áhugi á að nemendur tileinkuðu sér efnið og næðu árangri.

Fjölbreyttar kennsluaðferðir

Mörg ummæli voru um kennara sem tókst að vekja áhuga nemenda á náminu og gera kennslustundirnar áhugaverðar. Góðir kennarar voru nefndir sem notuðu skemmtilegar og óhefðbundnar kennsluaðferðir.

Vinátta og virðing

Þeirra kennara sem fengu hvað flestar tilnefningar var ekki síst minnst fyrir vináttu og virðingu sem þeir sýndu nemendum sínum. Margir minntust kennara sem höfðu reynst þeim vel utan skólastofunnar. Þeir gáfu sér tíma til þess að hlusta, voru óeigingjarnir á tíma sinn og tilbúnir að aðstoða innan skóla sem utan.

Sanngirni og réttlæti

Umhyggja og réttlæti voru einkenni góðra kennara að mati margra. Kennarar sem gera ekki upp á milli nemenda og koma fram við alla á jafnréttisgrundvelli eru góðir kennarar.

Hvatning og stuðningur

Hvetjandi og styðjandi voru algeng ummæli um þá kennara sem fengu margar tilnefningar. Fólk minntist kennara sem vöktu athygli á styrkleikum þeirra og hrósuðu þeim fyrir það sem vel var gert.

Varanleg áhrif á líf nemenda

Fólk á ýmsum aldri lýsti því hvernig kennarinn þeirra og kennslan varð kveikjan að nýjum hugmyndum, framtíðaráformum og námsáhuga. Sumir töldu að kennarinn hafi breytt sýn þeirra á heiminn og haft áhrif á líf þeirra.

Hafðu áhrif

Þegar rýnt er í þau ummæli sem góðir kennarar fengu frá núverandi og fyrrverandi nemendum sínum má ljóst vera að þar fer áhrifamikið fólk. Einstaklingar sem hafa haft áhrif á æsku og lífshlaup fjölmargra.

Ég hvet það unga fólk, sem nú er að huga að framtíðarstarfi og vill hafa áhrif á mótun íslensks samfélags, til að kynna sér fjölbreytt nám á sviði kennslu, uppeldis og þjálfunar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×